Kanamellurnar

Hey þú... viltu koma inn og verða fjórði meðlimurinn í......Kana

24.02.2009 21:10:56 / Björney

Kosningar um Mömmukvöldsmat :D

Þá eru ekki nema 10 dagar í atburðinn !! :haha:
Kominn tími til að kjósa um stað og fá tölu á mannskapinn til að hægt sé að panta borð;)
Það væri því frábært ef allir myndu taka fram hvort þeir kæmust ekki örugglega og hvaða mömmur komast með 8)
Við ætlum að kjósa milli eftirfarinna staða sem nefndir hafa verið:
  1. RÓSENBERG
  2. ÓLÍVER
  3. PÍSA
  4. CARUSO
  5. VEGAMÓT
Hlakka ROSA mikið til ;D
Kveðja Bjössa :lol:8)


» 11 hafa sagt sína skoðun

17.02.2009 21:10:35 / Björney

Mömmukvöld 2 - 6. mars 2009

Jæja stelpur :haha:
Nú er liðin vika frá síðasta bloggi og kominn tími til að taka þetta saman og koma með endanlega ákvörðun ;) enda löngu orðið tímabært að láta mömmurnar taka frá dag!
Ég fór yfir gögnin :p og bar saman hvenær flestir komast, og niðurstaðan er sú að 6. MARS er dagurinn :haha:
Nú er mál að drífa í að láta allar mömmslurnar vita ! :lol:

Næsta vers er að finna STAÐSETNINGU :d
Allir að koma með hugmyndir !!
Linda er búin að stinga upp á að við prófum matseðilinn á ROSENBERG sem er náttla löngu orðið tímabært ;) þar er mikið um sjávarrétti og ymislegt sem mömmum líkar við :p haha
Það væri líka frábært ef við tjekkuðum á svona hóp-tilboðum eins og við gerðum fyrir pabbakvöldið! Það kom mjög vel út og svoleiðis verður líka yfirleitt hagstæðara en að allir panti sér :d

En allavegana, verum soldið virkar að svara og hafa umræðuna gangandi, enda eru nú ekki nema rétt rúmlega 2 VIKUR(17 dagar) í MÖMMUKVÖLD 2 !!!! 8)





» 9 hafa sagt sína skoðun

11.02.2009 20:59:29 / Björney

MöMMuKvÖLd 2 og KaNaMELLuSPILAkvöld

Hæhæhæ8)

Þetta BLOGG fjallar um tvennt:haha:

Nr 1:  MÖMMUKVÖLD 2 – The return of the moms!!
Við þurfum að negla niður DAGSETNINGU og því er bezt að kjósa.
Hér koma þær:
6. mars
7.mars
13.mars
14.mars
20.mars
21.mars
27.mars
28.mars
Ég vel MARS sem mömmukvöldsmánuð því það er nægilegur fyrirvari fyrir mömmur og dætur að taka frá kvöld OG það er enn dágóður tími í vorpróf;) ;)
Semsagt, best er að allir taki fram þá daga sem þeir komast EKKI á og svo getum við unnið úr þeim dagsetningum sem eftir verða !!

Nr 2:  Ég hitti Helmus áðan og í kjölfar umræðna á FEISINU fórum við að ræða um KANA.... Já kana muniði eins og við og síðan okkar heitum eftir ....:p
Okkur datt í hug hvort það væri ekki ógeðslega sniðugt og GAMAN að hafa bara eitt kvöld í viku fast KANAMELLUKVÖLD, og þá myndu bara þeir mæta sem hefðu tíma hverju sinni:haha:
Hvað segðuð þið um miðviku- eða fimmtudagskvöld kl 20:00 á Rósenberg ??
Má endilega kjósa um þetta líka:p

Kær kveðja, Bjözz:haha:

» 18 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 10:24:14 / Björney

Októbersaumaklúbburinn

Jæja mellurnar mínar :D
Það er smá breyting....daddaradamm
Saumaklúbburinn minn verður haldinn MIÐVIKUDAGINN 22. október en ekki fimmtudaginn 23. október.
Mæting uppúr 8 og ætlar Betty að hjálpa mér með veitingarnar :D

SEEJA :*

» 13 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 22:23:52 / Björney

ehm....septemberblogg?? :P

Góðan og blessaðan daginn :D

Nú ætla ég að blogga.

1. Fyrsta mál á dagskrá er október- saumaklúbbur Kanamellnanna, en hann verður haldinn heima hjá mér í Daltúninu fimmtudagiinn 23. október næstkomandi kl 20:00 :D Ég ákvað að vera snemma í því að tilkynna þetta þannig að nú getur enginn haft afsökun fyrir því að komast ekki :P haha

2. Svo er það sumarbústaðaferðin sem vann skoðunarkönnunina okkar en ekkert virðist ganga að plana... Ég var svona að spá í hvort við gætum ekki varpað upp nokkrum staðsetningum og dagsetningum hér á kanamellunum og haft umræðuna opna áfram...og svo gætum við tekið endanlega ákvörðun í saumaklúbbnum hjá mér ;)jei

3. Annað mál er vinningurinn sem Fríða á að fá fyrir ljóskukeppnina :D Það væri gaman ef við gætum komið með hugmyndir og ákveðið eitthvað sniðugt og afhent hann svo í saumaklúbbnum.  Allir að stinga uppá einhverju!

4. Hvernig finndist ykkur að hafa mánudagshádegismatinn svona hittingsmat fyrir vinahópinn?? Við erum nú þegar búnar að hittast nokkra mánudaga á Háskólatorgi svo mér datt í hug að stinga upp á því að halda þessu áfram...það eeeeeer svo gaman að hittast ;) ;) þá myndum við bara hafa þetta frá 11:30 og svo kæmum við bara á háskólatorg þegar tímarnir okkar klárast og þegar við hefðum tíma :D  ég verð a.m.k alltaf þar milli 11:30 og 12:30, en síðan eru einhverjr sem eru í tíma til12:20 þannig að fólk droppar bara in and out...

5. Jæja ég kveð að sinni, 

Björney


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 19:07:04 / Björney

Júlíblogg

Hæhó og halló halló :lol:
Þar sem þetta er fyrsta blogg júlímánaðar fannst mér ekki úr vegi að kalla það Júlíblogg:haha:
Fyrst smá fréttayfirlit yfir atburði sumarsins so far:

Alex er búin að eiga afmæli...Til hamingju með það elskan okkar!! ;) Hún hélt svaka fínt boð þann 27. júní með "kjúklingasalati sumarsins!", Sangríu,  Singstar og ég veit ekki hvað og hvað.. 8) 

Fullorðinsheimsóknin hennar Fríðu varð loks að veruleika þann 30. júní :þ Ekkert smá fín íbúð þar á ferðinni!! Fengum fínasta snakk og pepsí max og ræddum fullt af góðum fullorðinshlutum:haha: Til hamingju Fríða!!!

Júlí byrjaði á því að Kanamellurnar tóku ein af annarri upp á því að skipta um símafyrirtæki og var fjölmennt yfir í Nova:d Linda og Guðrún tóku fyrsta skrefið, svo fylgdu Björney og Rósa að vörmu spori og núna síðast var Elín að bætast í hópinn8) Við vonumst náttla til að sem flestar Kanamellur skipti yfir svo hægt sé að hringja fríkeypis í allar mellur :haha:

7. júlí fóru Björney og Elín í Skálhotl og voru í viku. Það gekk mjög fínt og komu þær eeeendurnærðar til baka8)

Fríða skellti sér á Interrail með nokkrum skvísum úr bekknum hennar og gengur allt smurt eftir því sem ég best veit :d mikið ævintýri þar á ferð og ekki laust við að maður öfundi hana ... smá 

18. júlí hittust nokkrar Kanamellur hjá  Lindu þar sem nokkrir Twisterar voru étnir og nokkrir bjórar teygaðir...8) daginn eftir á laugardegi var síðan ferð á Árbæjarsafnið í heimsókn til Guddu. Það var mjög fróðlegt og skemmtilegt og þökkum við Guddunni okkar fyrir góðan Guide - túr um safnið;) haha

Hressir danir komu til landsins í heimsókn til Rósu og Dabba þann 24. júlí... en það kvöld hlustuðu Elín og Rósa á Buena Vista Social Club 8)

Föstudaginn síðasta eða 25. júlí fóru síðan nokkrar Kanamellur á Mugison á Nasa og var það hin besta skemmtun:haha: hann stóð sig býsna vel kallinn og fengu danirnir hennar Rósu að sjá alvöru íslenskt rokk :lol:

Jæja þetta er bara svona það sem kemur upp í hugann á mér en þið eigið að fylla í eyðurnar þar sem ég er að gleyma einhverjum atburðum:haha: aight?


En nú eru úrslit kunngjörð úr Ljóskukeppni Kanamellanna og fór sú keppni svo:

1. sæti - Fríða með 17 atkvæði
2. sæti - Alex með 15 atkvæði 
3. sæti - Elín með 7 atkvæði 

Til hamingju Fríða!!:d 
Nú má endilega koma með hugmyndir að vinningi (allir nema Fríða) ;) haha

Að lokum vil ég vekja athygli á nýrri könnun sem er komin á laggirnar og hún verður virk þar til 14. ágúst en síðan var ég að láta mér detta í hug að við gætum framkvæmt vinningshugmyndina (það sem fær flest atkvæði í skoðanakönnuninni) um helgina 15. - 17 ágúst :haha:
What do you say girls??

Kveð í bili...ykkar Bjössa;)

» 9 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 16:39:48 / Fríða

Fullorðinsboð

Hæ sætu krúsídúllurnar mínar :)
Ég var að spá í að bjóða ykkur í kaffi í nýju íbúðinni minni á morgun, mánudaginn ef það er stemning fyrir því :haha: Þetta verður voða fullorðins og bara talað um pólitík og viðartegundir ;)
Látið mig vita ef þið viljið koma.
kv
Fríða fullorðins


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 16:20:47 / Björney

....Og hér kemur matseðillinn fínpússaður :D

Var að fá póst frá honum Alla (sem ég veit núna að er Veitingastjórinn á Brons :þ )
En hann leggur til eftirfarandi matseðil:

Forréttur: Humar í skel með mango-chilli salsa

Aðalréttur: Nauta-spjótið og kjúklinga-spjótið með chilli-sýrðum rjóma og bakaðri kartöflu (á sama disk)

Eftirréttur:  Súkkulaðikaka a la Brons.

Þetta er svona fínni útgáfa af því sem við töluðum um í símann (þó mér hafi nú tekist að láta þetta líta nokkuð vel út sjálf finnst mér  :haha: )

En ég segi bara Bon Apetite (og vona að það sé skrifað svona 8) ) haha
Kveðja Bjössan ykkar


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 12:46:51 / Björney

Matseðillinn hjá Brons fyrir föstudaginn ;D

Jæja þá erum ég og Alli vinur minn hjá Brons búin að mixa þennan líka svakalega fína matseðil fyrir pabbakvöldið fyrir litlar 2300 kr á mann :haha: :haha: :haha:

Það verða semsagt 3 TAPAS-réttir:
TAPAS-réttur 1: Humar - A.K.A  "Grillaðir humarhalar"
TAPAS-réttur 2: Kjúklingabringa - A.K.A  "Kjúklingalundir á spjóti"
TAPAS-réttur 3: Naut - A.K.A  "Grillaðar nautalundir"

.....Og í desert er...
Súkkulaðidesert - A.K.A  "Bronssúkkulaðikaka"

Síðan fáum við tilboð á Hvítvínsflöskum með matnum 8)

Jæja hvernig hljómar þetta í fögrum eyrum ykkar?? :þ
Mér finnst þetta rosa-fínt tilboð :lol: (ég náði að prútta það úr 2500 niðrí 2300 hihi)
Ef þetta er svo reiknað saman af heimasíðunni þeirra þá kostar þetta samtals 2880 kjell!!

Og að lokum uppáhalds setningin mín: Endilega kommentiði mellurnar mínar! :lol:


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 15:02:23 / Björney

Og hvert á svo að halda..... ;D

Jæja ég hringdi á Vegamót en þeir eru mega-leiðinlegir og bara búnir að bóka ALLAN föstudaginn!!! Ýkt ömó :þ
EEEEn við búum í Reykjavík (eða næstum því í Reykjavík :haha:) og hún er stútfull af spennandi veitingastöðum :lol: svo eina vandamálið er bara að velja 8) 8)
Ég er búin að vera að skoða úrvalið... og er með tvær hugmyndir :D
Báðar hugmyndirnar eru mjög nýjir og ferskir staðir sem eiga það sameiginlegt að hafa mjög fínt verð miðað við gæði :haha:

En já áður en ég skít að ykkur hugmyndunum er réttast að tilkynna lokatölur... (er ekki Eurovision -stemningin mætt) hihi

Á pabbakvöldinu verða:

Björney og pabbi Bjössi

Linda og pabbi Siggi

Guðrún og pabbi Óskar

Fríða og pabbi Birgir

Rósa og kannski pabbi Guðjón

Og síðast en ekki síst kemur Elín eftir 22:00 :D Jei
Samtals: 10 (plúsmínus 1) :P

Hugmynd eitt er nýr Mexicanskur staður á Laugarveginum þar sem Angelo var, en hann heitir Santa Maria. Ég hef heyrt góða hluti um hann og hann er víst voða kósí ;) Því miður fann ég enga heimasíðu fyrir hann samt :/

Hugmynd tvö er nýr Veitingastaður á Pósthússtræti (hjá Kaffibarnum) sem heitir Brons. Ég hef líka heyrt fína hluti um hann og hann gefur sig út fyrir að vera miög hópavænn ;) Maturinn þar er svona í smáréttasniðinu, tapas og pinnar en einnig eru salöt og hamborgarar og þannig...mmmm (ég er að verða voða svöng af allri þessari umfjöllun..:haha:) Heimasíðan er brons.is og endilega kíkiði ;) Ég hringdi áðan í Brons svona til að tjekka á aðstæðum og stemningunni fyrir svona fjölbreyttan og skemmtilegan hóp og talaði við voða hressan dreng sem ætlar að halda 10 manna borði fyrir okkur þangað til við ákveðum okkur (sem fyrst samt bað hann um :þ ) Hann sagði líka að við gætum ef við vildum ákveðið upphæð á mann og svo myndu þeir mixa saman einhvern hóp-kvöldverð þar sem við gætum fengið tækifæri til að smakka þá á fleiri tegundum en ella (þ.e ef við pöntum bara öll í sitthvoru lagi.. :P ) Mér leist bara voða vel á þetta og sagði að við skildum vera í bandi við hann á morgun... Þannig að ef ykkur langar að gera eitthvað svona sniðugt þá endilega komiði með hugmyndir að passlegri upphæð á mann (ég held að allt frá 2000kjelli á mann sé í lagi) en annars er okkur líka bara velkomið að panta öll sér upp á gamla mátann ;)

Hvernig líst ykkur svo á þessar tvær hugmyndir??
Það má auðvitað eeeeendilega koma með fleiri en við þyrftum samt að fara að taka ákvörðun allavegana bráðlega ;D
Fleiri hugmyndir sem ég er búin að íhuga eru: Hressó. Victor, Ítalía, Hornið, Thorvaldssen....og reyndar margt fleira... möguleikarnir eru endalausir stelpur :þ
Eru ekki allir örugglega orðir jafn spenntir og ég :haha: :haha:
Ég held þetta verði ýkt mega ógeðslega gaman hjá okkur !!!
Endilega verðið duglegar að kommenta og komum þessu svo á hreint sem fyrst.
Kveðja Björney sem er komin með alla veitingastaði í bænum á hreint8)

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 13:17:00 / Björney

Styttist í pabbakvöld :D

Hæhæ og halló halló elsku dúllurúsínurnar mínar!!!:haha:
Nú fer að styttast í dag pabbanna.....bara 5 dagar þangað til og ég er orðin alveg ROSA posa spennt;)
Nú fer að styttast í að ég panti borð svo ég er að spá í að taka saman lokatölu á næstu dögum um hvað við verðum mörg. (Muniði bara að ef pabbar komast ekki þá komið þið audda bara pabbalausar og kynnist hinum  pöbbulingunum er hagg:haha: the more the merrier) En já það væri fínt að fá að vita bara sem fyrst og svo panta ég líklega bara á þri/mið :D 
Og hvert viljiði svo fara?? Það var náttla alveg frábært á Vegamótum með mömmunum svo það er spurning um að endurtaka það bara...?? Hvað segiði um það? Endilega komiði með hugmyndir af nýjum stöðum ef þið hafið;)  Ég sé kostinn við Vegamót að hann er ekkert of dýr og svo er fínt pláss þarna baka til þar sem við vorum með mömmunum og svo er maturinn náttla bara svo góður....slef....mmmm....Vegamótasalatið..:lol: Já og fjölbreyttur.
Svo er spurning með tímasetninguna... Guðjón pabbsinn hennar Rósu og SIggi pabbsinn hennar Lindu eru báðir uppteknir til 8 svo það er spurning um að panta kannski bara 8:30 (já eða kannski frekar 20:30 hitt er soooldið snemmt:haha:
Soddan þá held ég að ég sé búin að muna eftir öllu sem ég ætlaði að segja..já og með Eurovision þá var þessi pabbakvöldsdagsetning greinilega svona rosalega vel valin að þetta er akkúrat kvöldið milli Eurovision!! hihi svo það er bara partý þrjá daga í röð8:d
Jæja ég kveð þá að sinni ...
Ykkar Bjössa bolla á mjólkurbílnum keyrandi með bensínið á botná fyrsta gírnum;)

» 13 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 21:49:16 / Elín

Próf!!!

Ég sit hérna ein inni á lesstofu á læknagarði. Þar sem ég er aaaalein og enginn til að segja mér að halda áfram að læra þá ákvað ég að setja inn nokkrar línur:)
Nú er komið roooosalega langt síðan ég hef séð ykkur stúlkur mínar! Það er greinilega einhver prófalestur að ganga... En brátt kemur betri tíð með blóm í haga o.s.frv. og ég hlakka verulega mikið til að geta farið á sumardjamm með ykkur í sumar.;)
En talandi um það... mig hefur svo rosalega oft langað til Eyja á þjóðhátíð en aldrei látið verða af því. Mig langar mjög mikið til að skella mér í sumar þar sem ég verð ekki í helgarvinnu og alveg bókað að ég verði í fríi yfir verslunamannahelgina. Hvað segið þið? Eruð þið til í að skella ykkur með mér í drullusvaðið í eyjum? Plííííís;):$:lol:


» 22 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 15:58:00 / Björney

Fullt hús matar

Ég var alltíeinu að muna að ég lofaði upp í ermina á mér um daginn að blogga reglulega. Ég ætla að blogga um mat. Matur er yfirleitt mjög ofarlega i huganum mínum því mér finnst gott að borða. Ég vil helst borða sjaldan en þá mikið í einu og finna þannig almennilega fyrir bæði svengd og seddu. Ég nenni ekki að borða ef ég er ekki alveg orðin svöng. Það er ekkert gaman. Ég nenni heldur ekki að borða ef ég er ein. Það er heldur ekkert gaman. Kannski verður þetta vandamál einn daginn. Mér finnst ekki allur matur góður og það má alveg kalla mig matvanda. í raun og veru finnst mér öfgarnar bestar. Hollustumatur dauðans frá grænum kosti eða sveittur sjoppubúllumatur. Hljómar kannski skrítið. Ég er eiginlega skrítin8) Mér finnst oft eins og maturinn minn sé falinn. Eins og þegar pantað er kínverskt og maður fær fjall af hrísgrjónum með bara af því að það er svo auðvelt að sjóða þau og kínverjar eiga svo mikið af þeim. Hrísgrjón finnst mér furðuleg. Litlar hvítar ræmur með engu bragði. Samt finnst öllum þau mjög góð. Meðlæti er skrítið hugtak. Maður pantar sér ákveðinn mat og með honum kemur hrúga af "meðlæti". Stundum verð ég óvart södd af meðlæti áður en ég næ að klára það sem ég pantaði. Það er asnalegt. Ég væri alveg til í steik með steik on the side. Ég er skrítin. Það á ekki að borða hratt. Stundum finnst mér gaman að borða hratt. Ég hef lent í því að borða hægt en þá borðaði ég kaldan mat. Kaldur matur er góður en ekki kaldur matur sem var einu sinni heitur.

Ég ætla að fá mér kaffi;)
 

» 8 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 21:23:50 / Björney

Damdara damm...Pabbakvöld :D

Hæhæ :)
Ég ákvað að flytja pabbakvöldsumræðuna yfir á sér-pabbakvöldsblogg sem ég lofaði að blogga:p jei
Hér kemur kóperaður texti úr bloggi sem ég skrifaði þann 26. júní á síðasta ári soldið langt síðan: hihi

Hvað segiði stelpurnar mínar fer ekki að koma að því að pabbarnir fái að njóta sömu forréttinda og mæður okkar fengu þegar við buðum þeim (eins og frægt er orðið) í sögulegan dinner og djamm ?8) Ég veit allavegana að pabbi minn yrði þokkalega kátur og hamingjusamur og ég veit að Birgir pabbi hennar Fríðu bíður spenntur líka:haha: En endilega komið með hugmyndir að tíma og staðsetningu (væri alveg gaman að fara bara aftur á Vegamót er haggi) og við skulum endilega láta verða að þessu:lol: Kveðja ykkar Bjössa

Semsagt dagsetningin sem um ræðir núna er 23. maí 2008:lol:
Hvað finnst ykkur um að láta staðsetninguna bara standa og gera Vegamót að hefðar-stað (tvíræð merking...) hinna bráðskemmtilegu þema-kvölda kanamellanna??8)
En sem komið er hafa 4 kanamellur og 2 pabbar staðfest að þeir komist umrætt kvöld 23 maí. Það eru Linda, Elín, Bjössa og Fríða og svo Bjössi og Birgir pabbakallar...:haha:
Umræðan er samt bara rétt að fara af stað svo stelpur drífiði ykkur nú að svara og takið virkan þátt í þessari bráðskemmtilegu umræðu !! 
Og endilega setjið inn myndir það erso gaman að skoða skemmtilegar og fyndnar myndir af okkur  og hlæja og rifja upp hluti ... er það ekki ?
Heil og sæl
Ykkar Bjössa bolla


» 48 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 20:54:19 / Linda

Wizard!!!

Hæjjj!!
ég fékk það verk eftir að ég, Elín, Björney og Guðrún spiluðum kani á laugardaginn var að skrifa inn stigin þar sem að ég vann:haha: en já ég er búin að því og meira að segja búin að gera þessa svaka fínu stiga töflu sem er þarna í aðalvalmyndinni. Systemið er semsagt þannig að það er alltaf hægt að bæta inn stigum og ég ákvað að hafa bara x hjá þeim sem voru ekki með... og svo þegar næst verður sett inn stig þá fer það bara í línuna fyrir neðan. Allir sáttir???

En já svo kom annað upp í tal hjá okkur stelpunum að við þyrftum að fara að drífa okkur í því að hafa pabbakvöd og það kom ein uppástunga á dagsetningu sem var 23. maí endilega kommentið um hvað ykkur finnst um það!!!

En annars segji ég bara sælar að sinni og já Gleðilega páska dúllurnar mínar 8)

LalalalaLinda

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1071 dögum
MÖMMUKVÖLD 2 ;D
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 12540
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 22 október
Könnun
Hvað þurfa Kanamellurnar deeeefinitly að gera áður en sumrinu líkur?
Útilega í Galtalæk
0 atkvæði

Kökuboð
1 atkvæði

Hjóla hringveginn
1 atkvæði

Fara í snúsnú
2 atkvæði

Kíkja á djammið :p haha
0 atkvæði

Sumarbústaðaferð
8 atkvæði

Halda bókakvöld
0 atkvæði

Teygjustökk
0 atkvæði

Helgarferð til Köben
1 atkvæði

Gönguferð um Elliðarárdalinn
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 14
Myspace-in okkar ;)
Kæró myspace ;)